Jæja þá er að byrja að blogga.......

...........þó mér finnst það asnalegt.

 

En það er gaman að gera hluti sem eru asnalegir t.d fara á fyllerí, það gera bara asnar.

 

En nóg af gríni

 

Mótorhjól.

Einu sinni fyrir langa löngu langaði mér í mótorhjól, sérstaklega Harley Davidson. Ég átti stóra bók með myndum af kúl mótorhjólum. Mig langaði svo mikið í stórann harley með beinu stýri og löngu stýrishjóli, vera fúlskeggjaður , í leðurjakka og vera í Hells Angels klúbbnum.

Ég gleymi því aldrei þegar ég var svona 9 ára, var í Finnlandi með pabba og þar var mótorhjóla bar rétt hjá húsinu, sem við bjuggum í, með ógeðslega flottum hjólum, allt Harley Davidson. Þar var fullt af risastórum köllum sem að voru tattooveraðir allstaðar útum allt. 

 Einn daginn ákvað ég bara að heimsækja barinn,einn, og ætlaði að skoða hjólinn betur. Þegar ég var búinn að skoða hjólinn fór ég inn á barinn. Þá varð þögn (eins og í bíómyndunum) og einn risastór feitur kall með grátt sítt skegg fer að babbla við mig, ég skil ekkert en hann var reiður á svip þannig að ég bennti bara á út á mótórhjólinn. AHA þrumar kallinn og labbar með mér út og fleirri risakallar koma með. Þeir leyfa mér að sitja á hjólunum, skelltu einu í gang og leyfðu mér að þenja það. Svo ákvað einn að taka mig á smá rúnt, tók einn smá hring og svo gáfu þeir mér ís. 

Ég ætlaði sko að fá mér svona tattoo sleave og fá mér gallavesti sem stendur Hells Angels þegar ég verð stór, því það stóð aftan á þeim öllum.

 

En mótórhjólamenningin í dag heillar mig ekki, 4/5 af hjólurum sem að ég mæti á götunni keyra eins og fífl. Ég vil ekki vera eins og þeir.

 

Þegar hjólafólk hættir að keyra á gangstéttum og á næstum yfir 200km hraða þá skal ég vorkenna þeim eða þegar fíflin eru komin niður í 1/5

 


Jæja

Jæja þá er ég byrjaður að blogga, mér finnst það asnalegt en mér finnst kúl að gera asnalega og lúðalega hluti.

Í dag gerði ég ekki neitt nema borða nammi og spila íshokkí, það er helvíti gaman.

 


Um bloggið

Gunnlaugur Björnsson Thoroddsen

Höfundur

Gunnlaugur Björnsson Thoroddsen
Gunnlaugur Björnsson Thoroddsen
Sauðdrukkinn, sjóðillur leiðindahaugur.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 122

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband